|
Aðgát er félag aðstandanda fanga.
Aðstandendur fanga hafa lengi vel verið ósýnilegur hópur í samfélaginu. Þeir hafa haldið sig
til hlés og setið uppi með áhyggjur sínar og vanlíðan. Fundið fyrir skömm vegna afbrota sinna
nánustu. Stórt skref var stigið með tilkomu félags aðstandenda fanga, Aðgátar,
sem stofnað var fyrir fjórum árum. Félagið heldur fundi, fyrsta þriðjudagskvöld í upphafi hvers
mánaðar. Þar koma aðstandendur saman, miðla sameiginlegri reynslu, stappa stálinu í hverja
aðra og horfa með jákvæðum huga til framtíðar sinna nánustu. Umfram allt láta þeir þá vita af
því að þeir séu ekki einir á báti. Aðgát hefur nú opnað vefsíðu,
www.adgat.net þar sem hægt
verður að fá hagnýtar upplýsingar fyrir aðstandendur fanga.
|