Litla-Hraun
Fangi getur fengið eina heimsókn á viku frá nánustu vandamönnum. Þá getur fangi sótt um heimsóknarleyfi fyrir aðra og er það háð samþykki yfirmanna fangelsisins. Fangi þarf að panta tíma fyrir heimsóknir skriflega á þar til gerðu eyðublaði. Heimsóknir fara fram milli kl. 13.00 og 16.30 nema mánudaga og þriðjudaga. Heimsókn fer fram í sérstöku heimsóknarherbergi.