Upphaf Aðgátar

Árið 2000 gerast þeir skelfilegu atburðir að ungir menn valda dauða. Þessir ógæfumenn eru dæmdir til margra ára í fangelsi. Áföll aðstandenda og gerenda verða ólýsanleg og einnig þeirra sem tengjast þeim sem létu líf sitt. Einn þessara ógæfumanna átti og á nákomna ættingja í Svíþjóð, hjón sem eru fagfólk með fjölþætta menntun m.a. frá háskóla í Bandaríkjunum og reynslu í félags-og sálfræði og uppbyggingarstörfum. Þau höfðu byggt upp og rekið fyrirtæki í Svíþjóð sem starfaði að þessum málum í samvinnu við yfirvöld í borginni sem þau bjuggu í. Þau fluttu heim árið 2001 til að veita fjölskyldu og fanga stuðning og bjuggu hér á landi í 5 ár. Fljótlega varð þeim ljóst að umhverfi fangelsismála og meðferðar eru hér í öðrum farvegi þau þekktu og voru vön að vinna með ytra. Breytinga var þörf.

Félagasamtökin Aðgát voru stofnuð að frumkvæði ofangreindra hjóna árið 2003 og hafa starfað síðan. Þörf var á samtökum sem þessum þar sem aðstandendur gætu komið saman, deilt áhyggjum sínum, skipst á upplýsingum, skoðunum og fundið stuðning hjá öðrum í svipaðri aðstöðu.

Í fyrstu voru fundir haldnir vikulega þar sem vanlíðan aðstandenda var mikil og margt í ólestri í málefnum fanga. Nú eru fundnir haldnir einu sinni í mánuði og oftar ef þörf krefur. Þeir eru haldnir í Safnaðarheimili Fríkirkjunnar í Reykjavík fyrsta þriðjudagskvöld hvers mánaðar kl. 20:30. Má segja að margir hafi fengið fyrstu áfallahjálp sína á þessum samverustundum. Geðlæknir, prestar, þingmenn, afbrotafræðingur og félagsfræðingar sem voru skrifa lokaritgerðir í námi sínu, mættu á fundi, fræddust og miðluðu fróðleik.

Nýtt frumvarp um fangelsismál var í undirbúningi á þessum tíma. Félagið beitti sér af afli til að það yrði ekki að lögum óbreytt. Það hafðist og var tekið til endurskoðunar. Nýr fangelsismálastjóri kom til starfa á þessu tímabili og einnig nýr dómsmálaráðherra. Breyting til batnaðar hefur því orðið á starfstíma Aðgátar varðandi fangelsismálin.Fleira mætti til taka um starfsemi félagsins sem yrði of langt upp að telja, en hugsjónin var og er enn að bæta líðan fanga og aðstandenda þeirra. Margt hefur breyst til batnaðar en enn er af nógu að taka fyrir samtökin Aðgát að beita sér fyrir.


Hugleiðingar um ráðgefendur

Verndarblaðið 2007 er komið út og í því eru margar góðar og sannar greinar.
Viðtal er við Brynju Rós Bjarnadóttur og hún minnist á Aðgát og einnig á að einhverja þurfi til að fræða aðstandendur og leiðbeina þeim þegar þeir standa skyndilega frammi fyrir frelsissviptingu maka eða aðstandanda.
Engin slík opinber aðstoð er til enn.

Til Foreldrahúss er hægt að leita. Það kom fram í sjónvarpsþætti Sirrýar
„Örlagadagurinn” á árinu 2007. Þar sagði móðir sögu sína en sonur hennar var fangelsaður og fjölskyldan fékk áfall og lenti í veikindum, en slíkt er oft fylgifiskur svona atburða. Fjölskyldan fékk hjálp í Foreldarahúsi.

Vefsíðu Ekron ættu sem flestir að lesa. Þar koma fram úrræði fyrir fólk sem lent hefur í erfiðleikum. Ekron býður einnig upp á endurhæfingu fólks til að komast út á vinnumarkaðinn. Það væri akkur fyrir fanga sem lokið hafa afplánun og hugsa til betri tíma að geta leitað þangað í lok fangelsisdvalar.Fangar á Litla Hrauni hafa unnið mikið í sínum málum og stofnað félagið „Afstaða til framtíðar”. Þeir hafa gefið út blað sem hægt er að lesa á netinu (sjá timamot.is )
Þeir hafa reynt að bæta sem mest í sínu umhverfi eða eftir því sem hægt hefur verið.